Vefverslunarkerfi

Opnaðu vefverslun samdægurs

Er fyrirtækið þitt að hugsa um að opna vefverslun? Þá ertu á réttum stað, því við erum sérfræðingar í vefverslun.

Zolon er byggt á reynslu og er þróað út frá nánum samskiptum við viðskiptavini okkar og með þarfir þeirra í huga. Með því að leggja aðeins áherslu á þá hluta vefverslunarreksturs sem eru mikilvægastir, í stað þess að byggja upp kerfi í blindni, náum við að halda kostnaðinum fyrir þig í lágmarki en getum samt boðið þér upp á kerfi sem gerir allt sem vefverslunarkerfi þarf að geta gert.

 

Vörur og vöruafbrigði

Einfalt er að setja inn vörur, flokka og myndir í kerfið. Hver og ein vara getur haft mörg afbrigði, svo sem stærðir og liti, sem getur haft eigið verð og vörunúmer. Zolon getur haldið utan um birgðastöðu á vörum og afbrigðum og uppfærir birgðastöðuna sjálfkrafa um leið og vara er keypt.

Sendingarkostnaður

Þú getur með einföldum hætti stjórnað sendingarkostnaði á vörum í vefversluninni þinni, hvort sem þú ert að selja litlar, stórar, léttar eða þungar vörur. Sendingarkostnaði getur þú stýrt eftir annað hvort flokkum eða staðsetningu og þyngd. Verið er að vinna að því að beintengja kerfið við verðskrá Póstsins.

Greiðslumöguleikar

Zolon býður upp á örugga meðhöndlun kreditkorta með 128-bita SSL lykli. Ásamt þvi að bjóða upp á móttöku kreditkorta getur þú leyft viðskiptavinum að millifæra, fá senda póstkröfu eða greiða við afhendingu vörunnar.

Pantanir

Þú getur fylgst með pöntunum á þægilegan máta í kerfinu, merkt þær afgreiddar eða óafgreiddar og skrifað við þær athugasemdir.

Hýsing innifalin - enginn rekstrarkostnaður

Hýsing á vefnum þínum er innifalin í mánaðargreiðslum, þannig að þú þarft ekki að taka á þig þann rekstrarkostnað sem fylgir því að hýsa vefkerfi.

Dagleg afritun

Fátt er mikilvægara en að eiga til afrit af gögnum og skrám og vefurinn þinn er að sjálfsögðu engin undantekning. Við tökum afrit af öllum vefum sem nota Zolon á hverjum degi.