Vefumsjón

Opnaðu vef á örfáum mínútum
Zolon er hagkvæmt vefumsjónarkerfi jafnt fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki af öllum stærðargráðum. Þú einfaldlega borgar bara fyrir það sem þú þarft.Zolon er hýst vefumsjónarkerfi, en það þýðir að öll uppsetning og allur rekstur er í okkar höndum. Slíkt fyrirkomulag sparar fyrirtækinu þínu kostnað og gerir allar kerfisuppfærslur fljótlegri. Um leið og við uppfærum kerfið færð þú uppfærsluna sjálfkrafa án auka kostnaðar.
Engin uppsetning af þinni hálfu
Zolon er hýst lausn og því er uppsetningin einföld og krefst engrar tæknikunnáttu. Um leið og þú skráir þig er vefurinn þinn tilbúinn. Þar af leiðandi er upphafskostnaðurinn með þeim lægsta sem þekkist hérlendis.
Frétta- og bloggkerfiMeð frétta- og bloggkerfi Zolon getur þú sett inn fréttir og tilkynningar á vefinn þinn, ásamt því að halda úti bloggsíðu fyrir fyrirtækið. | Vörukerfi og vefverslunÞú getur opnað vefverslun með því að nýta þér vefverslunarkerfi Zolon. Smelltu hér til að kynna þér málið. | |
HeimsóknatölfræðiMeð kerfinu fylgir einfalt yfirlit yfir heimsóknir. Viljir þú hins vegar ítarlega heimsóknatölfræði bjóðum við upp á tengingu við Google Analytics, sem er öflugt og ókeypis vefgreiningartól. | Eigið lénÞú getur að sjálfsögðu tengt vefinn þinn við þitt eigið lén, hvort sem þú ert að kaupa nýtt lén eða flytja núverandi. Nánari upplýsingar finnur þú í kerfinu. | |
Markpóstur / póstlistiVertu í góðu sambandi við viðskiptavinina þína með því að leyfa þeim að skrá sig á póstlistann þinn. Við bjóðum þér að tengja vefinn þinn við póstlistakerfið Zolon Campaign. Með því getur þú sent flott og vel upp sett fréttabréf. | Sjálfvirkar og ókeypis uppfærslurVið erum stöðugt að þróa Zolon kerfið og vitum vel að allir viðskiptavinir okkar gera þá kröfu að kerfið hvorki staðni né úreldist. Allar uppfærslur berast þér sjálfkrafa og án aukakostnaðar, þú ert því alltaf í nýjustu útgáfunni af kerfinu. | |
Hýsing innifalin - enginn rekstrarkostnaðurHýsing á vefnum þínum er innifalin í mánaðargreiðslum, þannig að þú þarft ekki að taka á þig þann rekstrarkostnað sem fylgir því að hýsa vefkerfi. | Dagleg afritunFátt er mikilvægara en að eiga til afrit af gögnum og skrám og vefurinn þinn er að sjálfsögðu engin undantekning. Við tökum afrit af öllum vefum sem nota Zolon á hverjum degi. |

